Röst sjávarrannsóknasetur hefur veitt Hafrannsóknastofnun Íslands 60 milljóna króna styrk til að framkvæma rannsóknir á haffræði Hvalfjarðar.

Í tilkynningu segir að markmið rannsóknanna sé að afla gagna til að berjast gegn loftslagsbreytingum og undirbúa tilraunir með nýja aðferð við að fjarlægja koldíoxíð úr andrúmsloftinu.

Verkefnið felur í sér að Hafrannsóknastofnun mun gera grunnrannsóknir á því hvernig sjávarumhverfið í Hvalfirði breytist og þróast eftir árstíðum. Í verkefnalýsingu rannsóknarinnar kemur fram að bátur á vegum Háskóla Íslands verði nýttur til mælinga á fjölda umhverfisþátta í firðinum, meðal annars plöntusvifi.

„Ein stærsta áskorun samtímans er að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda en jafnframt er nauðsynlegt að finna öruggar, skilvirkar og sannreyndar leiðir til að fjarlægja koldíoxíð úr andrúmsloftinu. Lykilforsenda þess að geta stundað vísindalegar rannsóknir á þessu sviði er að afla grunngagna og það er ómetanlegt að geta leitað til Hafrannsóknastofnunar með þá miklu reynslu og fagþekkingu sem þar er að finna,“ segir Salome Hallfreðsdóttir, framkvæmdastjóri Rastar.

Verkefnið hófst í mars síðastliðnum og gert er ráð fyrir að því ljúki í lok september á næsta ári en vonast er til að rannsóknirnar leiði til dýpri þekkingar á straumkerfi fjarðarins, hita, seltu, efnasamsetningu og frumframleiðni hans.

„Loftslagsbreytingar og súrnun sjávar eru hraðar breytingar sem ógna vistkerfum jarðar. Þetta tiltekna verkefni gengur út á að auka grunnþekkingu til að undirbyggja ákvarðanir um frekari rannsóknir á svæðinu,“ segir Hrönn Egilsdóttir, sviðsstjóri umhverfissviðs Hafrannsóknastofnunar.

Röst sjávarrannsóknasetur, sem veitir styrkinn, er nýstofnað dótturfélag íslenska loftslagsfyrirtækisins Transition Labs og er jafnframt hluti af alþjóðlegu samstarfsneti Carbon to Sea Initiative. Niðurstöður verkefnisins verða gerðar aðgengilegar öðrum vísindamönnum með milligöngu Seanoe-samtakanna og í grein sem stefnt er að því að birta í vísindatímaritinu Earth System Science Data.