Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræðingur Íslandsbanka, segir allt benda til þess að hægst hafi á hagkerfinu hér heima samhliða því að verðbólga reynist þrálát.

Meginspá greiningardeildar Íslandsbanka gerir þó ekki ráð fyrir því að Íslendingar muni glíma við kreppuverðbólgu.

„Það eru fyrst og fremst þessir hagvísar sem endurspegla þróun á innlendri eftirspurn og sumpart útflutningi líka. Kortaveltutölur hafa verið með sterka fylgni við þróun einkaneyslu og við höfum verið að sjá nánast samfelldan samdrátt alveg frá miðju síðasta ári,“ segir Jón Bjarki.

„Annar mælikvarði sem mælir bæði einkaneyslu og fjárfestingu er t.d. innflutningur á fólksbílum sem er að hrynja. Það er nærri 50% samdráttur á fyrstu fjórum mánuðum ársins samanborið við sama tímabil í fyrra. Það er bæði í bílum til einkanota og bílaleigubílum. Það gefur okkur einhverjar vísbendingar um þessa tvo anga,“ bætir hann við.

Samkvæmt Hagstofu Íslands jókst velta í flestum atvinnugreinum hagkerfisins í janúar og febrúar 2024 í samanburði við fyrstu tvo mánuði ársins 2023. Aukningin var hins vegar almennt tiltölulega lítil og umfram verðbólgu (6,6%) í einungis helmingi atvinnugreina.

Þessi frétt er hluti af lengri umfjöllun Viðskiptablaðsins um stöðuna á hagkerfinu. Áskrifendur geta lesið umfjöllunina hér.