Skel fjárfestingafélag hefur samþykkt tilboð frá færeysku félagi í 48,3% hlut Skeljar í SP/F Orkufélaginu, eignarhaldsfélagi utan um P/F Magn sem starfar í Færeyjum. Kaupverð hlutafjár nemur 146 milljónum danskra króna eða um 2,8 milljarða íslenskra króna miðað núverandi gengi.

Áætlaður söluhagnaður Skeljar er 124 milljónir íslenskra króna miðað við bókfært virði í lok júní. Greitt verður fyrir hlutina með reiðufé á afhendingardegi, að því er kemur fram í tilkynningu Skeljar til Kauphallarinnar.

Tekið er fram að kauptilboðið sé háð hefðbundnum fyrirvörum, m.a. um áreiðanleikakönnun, afkomu ársins og samþykki eftirlitsaðila. Stefnt er að því að ljúka áreiðanleikakönnun og endanlegri skjalagerð innan tveggja mánaða en að þeim tíma loknum tekur við málsferð færeyskra eftirlitsaðila.

Skel, sem hét þá Skeljungur, seldi dótturfélagið sitt Magn til Sp/f Orkufélagsins í fyrra og var söluverðið 615 milljónir danskra króna eða um 11,8 milljarðar króna á gengi dagsins. Skel endurfjárfesti um 23% af heildarsöluverðinu - 141 milljón danskra króna, eða um 2,7 milljarða íslenskra króna á gengi dagsins - í Orkufélaginu og eignaðist þá 48,3% hlut.

Endurfjárfesta 270 milljónum í nýju eignarhaldsfélagi

Samhliða framangreindum viðskiptum hefur verið gert skilyrt samkomulag þess efnis að íslenskir fjárfestar í Orkufélaginu stofni nýtt eignarhaldsfélag sem mun eiga 11,9% hlut í Orkufélaginu. Skel mun eiga 39% hlut í umræddu eignarhaldsfélagi og greiðir fyrir hlutinn 14 milljónir danskra króna eða um 269 milljónum króna á gengi dagsins.

Hið nýja félag mun samkvæmt núgildandi hluthafasamningi eiga rétt á einum stjórnarmanni af fimm Orkufélagsins.