Landsvirkjun segir að skerðingar á afhendingu raforku til stórnotenda hafa nú verið afnumdar, rúmum 3-5 vikum fyrr en reiknað var með um miðjan sl. mánuð.

Í tilkynningu segir að staða í miðlunarlónum Landsvirkjunar batni nú nokkuð ört og mikill snjór á hálendinu gefi fyrirheit um gott innstreymi í lónin á næstu vikum.

„Undanfarið hafa hlýindi skilað auknu innrennsli, til dæmis á vatnasvæði Tungnaár á Suðurlandi. Niðurdrætti í Þórisvatni virðist lokið þetta vorið. Langtímaveðurspá fyrir Suðurland lofar hlýindum og þá tekur Þjórsá vonandi fljótt við sér. Við Blöndulón hafa verið miklar leysingar að undanförnu og það rís hratt,“ segir í tilkynningu.

Gert er ráð fyrir að lofthiti á landinu verði um eða yfir meðallag næstu þrjár vikurnar og gangi það eftir megi búast við því að staða lónanna batni hratt.

„Hálslón við Kárahnjúka er önnur saga, þar hafa litlar breytingar orðið upp á síðkastið. Hins vegar er snjór mikill á Austurlandi og varfærnar spár okkar gera ráð fyrir auknu innrennsli þar á næstunni.“

Miklar skerðingar í vetur

Undir lok sl. árs var gripið til skerðinga á afhendingu víkjandi orku til fiskimjölsverksmiðja og fiskþurrkana, auk gagnavera sem stunda rafmyntagröft. Landsvirkjun segir að þessar skerðingar muni standa áfram, enda engin umframorka tiltæk þótt staðan fari batnandi.

Því næst var afhending skert til fjarvarmaveitna og stórnotenda, þ.e. Elkem, Norðuráls og Rio Tinto. Í febrúar var svo tilkynnt um skerðingar á norður- og austurhluta landsins en þær náðu til álvers Alcoa Fjarðaráls, kísilvers PCC Bakka, TDK aflþynnuverksmiðjunnar og atNorth gagnaversins. Þessum skerðingum er núna lokið.