Hulda Hallgrímsdóttir, framkvæmdastjóri nýsköpunar og rekstrar hjá Sýn, hefur óskað eftir að láta af störfum hjá félaginu. Hún tók upprunalega við stöðunni í janúar 2023.

Frá þessu er greint í tilkynningu en félagið hefur ákveðið að fara í skipulagsbreytingar í kjölfarið sem felast einkum í því að sviðið verður lagt niður og verkefni þess verði færð á aðra stjórnendur.

Herdís Dröfn Fjeldsted, forstjóri Sýnar, segir Huldu hafa leitt grundvallar breytingar á tækniumhverfi Sýnar og stýrt þróun á nýjum þjónustulausnum.

Hulda segir að Sýn sé frábært fyrirtæki sem sé á mikilli sóknar- og breytingarvegferð þar sem ytra umhverfið hafi verið á stöðugri hreyfingu.

„Fjarskipta- og fjölmiðlafyrirtæki eru að fara í gegnum stórar tæknibyltingar og á sama tíma í mjög harðri samkeppni í krefjandi rekstrarumhverfi, það á sérstaklega við hjá Sýn. Á síðustu misserum hefur fyrirtækið gert róttækar breytingar á ferlum, tækni og skipulagi ásamt því að kaupa ný fyrirtæki og selja frá sér innviði. Þessar breytingar eru liður í þeirri vegferð að styrkja helstu rekstrareiningar félagsins með það að markmiði að byggja undir tekjustoðir framtíðar. Ég er ákaflega stolt af þeim árangri sem hefur náðst ásamt starfsfólki félagsins sem er vakið og sofið yfir upplifun viðskiptavina. Ég óska félaginu alls hins besta og þakka kærlega fyrir samstarfið,“ segir Hulda.