Íslenska tækni- og nýsköpunarfélagið Snerpa Power hefur verið valið til þess að vera stofnaðili að norska rannsóknarsetrinu SecurEL, að því er kemur fram í tilkynningu.

Snerpa Power er þar í hópi með öðrum stærri tæknifyrirtækjum eins og ABB og Siemens. Aðrir stofnaðilar eru m.a. rannsóknarstofnunin SINTEF sem mun leiða rannsóknarsetrið og fjöldi veitufyrirtækja.

Tilgangur SecurEL er að gera raforkukerfið betur í stakk búin til að styðja við kolefnishlutleysi en rannsóknarsetrið fékk á dögunum styrk frá norska rannsóknarráðinu (Norges Forskningsråd) til næstu sjö ára.

Sem stofnaðili SecurEL mun Snerpa Power nota hugbúnaðarlausn sem félagið hefur þróað til þess að stuðla að sjálfbærara raforkukerfi í Noregi sem hefur sett sér það markmið að verða kolefnishlutlaust samfélag árið 2050.

„Það er mikil viðurkenning fyrir okkur að vera stofnaðili að SecurEL og staðfestir að lausn Snerpa Power á erindi inn á alþjóðlega markaði. Innan SecurEL munum við taka þátt í því að gera norska orkuiðnaðinn sjálfbærari og betur í stakk búin til að takast á við áskoranir framtíðarinnar,” segir Íris Baldursdóttir, framkvæmdastjóri Snerpa Power.

„Þátttaka okkar í SecurEL kemur okkur í bein samskipti og samstarf við fyrirtæki innan raforkugeirans í Noregi sem er afar dýrmætt. Þetta gefur okkur sannarlega byr undir báða vængi að halda áfram að sækja og stuðla einnig að bættri nýtni raforkukerfisins erlendis og gera grænan iðnað samkeppnishæfan og hluta af lausninni í átt að orkuskiptum.”

Snerpa Power lauk 2,2 milljóna evra fjármögnun, eða sem nemur tæplega 310 milljónum króna, síðasta sumar.