Á dögunum fékk HeliAir Iceland ehf. úthlutað flugrekstrarleyfi hjá Samgöngustofu. Höfuðstöðvar HeliAir Iceland eru á Ólafsfirði og mun félagið halda úti þyrlurekstri bæði á Ólafsfirði og í Reykjavík.

Félagið hefur fest kaup á þyrlu af gerð Bell 407 GXP, sem bæði nýtist í farþegaflug og í verkflug, t.d. við hífingar og lagningu á göngustígum á viðkvæmum svæðum. Þyrlan tekur allt að 6 farþega og er útbúin sérstökum gluggum sem henta vel í útsýnisflugi.

„Starfsfólk HeliAir Iceland hefur áratuga reynslu í þyrluþjónustu bæði á Íslandi og erlendis. Allir flugmenn félagsins eru íslenskir og leggur félagið mikla áherslu á að flugmenn þekki vel til íslenskra aðstæðna,“ segir í fréttatilkynningu.

„Við erum mjög spennt að fljúga með viðskiptavini okkar og sérstaklega spennt að byggja upp þyrluþjónustu á Norðurlandi. Þetta er í fyrsta skipti þar sem að þyrla verður til staðar á Norðurlandi árið um kring og við höfum fengið mjög góð viðbrögð, svo sem frá ferðaþjónustuaðilum sem selja ferðir á svæðinu,“ segir Jón Þór Þorleifsson, framkvæmdastjóri HeliAir Iceland.

© Ásgeir Helgi Þrastarson (Ásgeir Helgi Þrastarson)
© Ásgeir Helgi Þrastarson (Ásgeir Helgi Þrastarson)
© Ásgeir Helgi Þrastarson (Ásgeir Helgi Þrastarson)