Málm­leitar­fé­lagið Amaroq Minerals, sem heldur á rannsóknar- og vinnsluheimildum á Grænlandi, birti í vikunni fyrsta árs­hluta­upp­gjör sitt eftir skráningu á aðal­markað en þar kemur fram að fé­lagið hefur gengið frá 51 milljónar dala fjár­mögnun til að hefja vinnslu í Nalunaq-gull­námunni á Suður-Grænlandi.

Til­rauna­boranir í sex bor­holum í Nalunaq skiluðu ný­verið hæsta gull­magni í sögu fé­lagsins en fé­lagið fann meðal annars nýja gull­æð sem er með 256 grömm af gulli í hverju tonni.

Sam­kvæmt því sem Við­skipta­blaðið kemst næst telst þetta gríðar­lega mikið magn af gulli per tonn þrátt fyrir að um sé að ræða neðan­jarðar­námu þar sem gull­styrkurinn er oft hærri en kostnaðurinn við að sækja gullið meiri.

Til að lesa meira

Hægt að er kaupa áskrift að Viðskiptablaðinu, Fiskifréttum og Frjálsri verslun hér.

Verð frá 4.495 kr. á mánuði