Hugbúnaðarfyrirtækið App Dynamic hagnaðist um 350 milljónir í fyrra samanborið við 260 milljónir árið áður, og tekjur tvöfölduðust annað árið í röð í 1,4 milljarða.

Kostnaðarverð seldra vara var nýr kostnaðarliður og nam tæpum 700 milljónum en félagið birgði sig upp af helstu söluvöru sinni, AirServer Connect 2, á árinu, sem kemur fram í viðskiptakröfum í árslok sem námu vel á sjötta hundrað milljónum samanborið við 31 milljón árið áður.

Félagið kynnti svo á dögunum arftakann, Connect 3, sem er fyrsta tækið sem fyrirtækið hannaði frá grunni og vann meðal annars hin virtu Red Dot hönnunarverðlaun í sumar.

Heildareignir námu ríflega milljarði í lok síðasta árs en eigið fé rúmum 800 milljónum og var eiginfjárhlutfall því 78%.

Greidd laun námu 129 milljónum og var sú tala svo gott sem óbreytt milli ára, en ársverkum fjölgaði um 1 í 10. Meðallaun námu því tæpri 1,1 milljón á mánuði.