Um 25.000 gestir sóttu Verk og vit sýninguna sem haldin var í Laugardalshöll 18.-21. apríl. Aðsóknin var svipuð og síðustu tvö skipti, 2018 og 2022.

Rúmlega 100 sýnendur tóku þátt að þessu sinni, en þetta var í sjötta sinn sem sýningin var haldin.

Svandís Svavarsdóttir innviðaráðherra setti sýninguna formlega. Fyrstu tveir dagarnir voru ætlaðir fagaðilum en um helgina var almenningi einnig boðið að heimsækja sýninguna.

Að auki komu um 1.800 nemendur í 10. bekk grunnskóla á sýninguna í boði Verk og vit og Samtaka iðnaðarins, meðal annars til að kynna sér iðn- og tækninám. Einnig buðu Verk og vit, Ístak og BYKO um 300 framhalds- og háskólanemum að koma á sýninguna og upplifa það sem þessar greinar hafa upp á að bjóða.

„Verk og vit heppnaðist mjög vel í alla staði. Metnaður sýnenda var mikill, sem skilaði sér vel til þeirra fjölmörgu gesta sem komu. Aðsóknin var þétt alla dagana og bersýnilegt að gestir gáfu sér góðan tíma, sér í lagi þeir sem starfa á þessum vettvangi,“ segir Áslaug Pálsdóttir, framkvæmdastjóri AP almannatengsla, sem er framkvæmdaaðili sýningarinnar.

Verk og vit er ætluð þeim sem koma að byggingariðnaði, skipulagsmálum og mannvirkjagerð á ýmsum stigum, m.a. sveitarfélögum, verktökum, iðnaðar- og þjónustufyrirtækjum, menntastofnunum, hugbúnaðarfyrirtækjum, hönnuðum og ráðgjöfum.

„Að þessu sinni lögðu sýnendur áherslu á uppbyggingu í iðnaði, iðnmenntun, fjárfestingu í innviðum og umhverfismál, sem eru allt mál sem eru mikið í deiglunni. Sýnendur á Verk og vit hafa jafnframt aldrei verið fjölbreyttari en nú og sérstaklega var ánægjulegt að sjá fjölgun erlendra sýnenda, sem styrkir sýninguna og markaðinn enn frekar,“ segir Áslaug.

Samhliða sýningunni var haldin ráðstefna á vegum Samtaka iðnaðarins, sem og fleiri áhugaverðir viðburðir. Samstarfsaðilar voru innviðaráðuneytið, Landsbankinn, BYKO, Reykjavíkurborg og Samtök iðnaðarins.