Samkvæmt tölum Hagstofunnar voru fluttar út vörur fyrir 72,9 milljarða króna í apríl 2024 og inn fyrir 119,3 milljarða. Vöruviðskiptin í apríl voru því óhagstæð um 46,4 milljarða króna. Til samanburðar voru vöruviðskiptin óhagstæð um 21,6 milljarða í apríl á síðasta ári.

Vöruskiptajöfnuður síðustu tólf mánuði var þá óhagstæður um 400,6 milljarða króna sem er 75,8 milljörðum króna óhagstæðari jöfnuður en á tólf mánaða tímabili ári fyrr.

Verðmæti vöruútflutnings á tólf mánaða tímabili var 919,7 milljarðar króna og dróst því saman um 102,7 milljarða miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr eða um 10% á gengi hvors árs.

Iðnaðarvörur voru þá 53% alls vöruútflutnings en verðmæti þeirra minnkaði um 14%. Sjávarafurðir voru 38% alls vöruútflutnings en verðmæti þeirra dróst saman um 6% í samanburði við tólf mánaða tímabil ári fyrr.

Verðmæti vöruinnflutnings á tólf mánaða tímabili var 1.320,3 milljarðar króna og minnkaði um 26,9 milljarða. Í stærri vöruflokkum var verðmætaaukningin mest í fjárfestingavörum og mat- og drykkjarvörum. Á móti kom þó samdráttur í verðmæti innflutnings á hrávörum og rekstrarvörum og eldsneyti og smurolíum.