Óðinn fjallar pistli sínum í Viðskiptablaðinu í morgun hvað gerðist í Garðabæ.

Margir halda ef til vill að þar sé Óðinn að tala um ótrúlega og óvænta stöðu í málefnum Marels hf., skuldavanda Árna Odds Þórðarsonar og forstjóraskipti. En svo er bara alls ekki.

Umfjöllunarefnið er stórfelld aukning skulda í Garðabæ en helming aukningarinnar má skýra með tveimur ákvörðunum bæjaryfirvalda.

Hér á eftir er stutt brot úr pistili Óðins en hann má lesa hér í fullri lengd.

Hvað gerðist eiginlega í Garðabæ?

Skuldir Garðabæjar hafa stökkbreyst á fáum árum. Fyrstu meginskýringuna má finna í því þegar Garðabær sameinaðist Álftanesi í kjölfar gjaldþrots þess síðarnefnda eftir ömurlegan rekstur vinstrimanna í bænum.

Skuldir og skuldbindingar Álftaness, eftir rúmlega helmings afskrift lánastofnana og jöfnunarsjóðs sveitarfélaga, nam að núvirði um 5 milljörðum króna haustið 2012, þegar kosið var um sameininguna. Skuldir og skuldir Garðabæjar námu hins vegar 6,7 milljörðum.

Þegar skuldirnar eru skoðaðar á hvern íbúa sést að skuldir á mann á Álftanesi voru 2,2 milljónir á mann á núvirði en aðeins 600 þúsund á mann í Garðabæ.

Gunnar Einarsson var bæjarstjóri í Garðabæ frá 2005-2022, eða í sautján ár. Við starfi hans tók Almar Guðmundsson hagfræðingur.
© Haraldur Guðjónsson (VB MYND/hag)

***

Bæjarstjórinn vildi sameiningu

Gunnar Einarsson, þáverandi bæjarstjóri Garðabæjar, var einarður stuðningsmaður sameiningar. Þetta sagði hann degi fyrir kosninguna, í október 2012:

Ég er hlynnt­ur sam­ein­ingu. Við erum búin að vera að ræða þessi mál í tvö ár og bora okk­ur ofan í all­ar töl­ur og þætti sem skipta máli í þessu og ég er al­gjör­lega sann­færður um það að þetta sé skyn­sam­legt og heilla­drjúgt skref fyr­ir Garðbæ­inga að stíga.


Það sem við höf­um haldið fram sem svona sterk­ustu rök­un­um fyr­ir sam­ein­ingu er að í fyrsta lagi er þetta ekki fjár­hags­lega íþyngj­andi fyr­ir hinn al­menna Garðbæ­ing. Það er búið að ná skuld­un­um það vel niður á Álfta­nesi að þær munu ekki íþyngja Garðbæ­ing­um og þjón­ust­an verður al­veg sú sama og álög­urn­ar líka. Auk þess er búið er að taka veru­lega til í rekstri Álfta­ness þannig að það sam­fé­lag á al­veg að geta staðið und­ir sér sjálf­bært.

***

Skuldirnar reyndust mun hærri

Heildarskuldir sameinaðs sveitarfélags reyndust mun hærri en þeir 11,7 milljarðar sem kynntir höfðu verið fyrir kosninguna. Voru skuldirnar 2,1 milljarði hærri, eða 13,8 milljarðar.

Þessi verulega skuldaaukning var aldrei almennilega útskýrð þó ekkert bendi til þess að Gunnar og félagar hafi fegrað bækurnar í aðdraganda sameiningarkosninganna.

En það stenst varla skoðun að skuldabyrðin sem Garðbæingar tóku af Álftnesingum við sameiningu hafi ekki haft áhrif. Auðvitað þyngir þetta róðurinn þegar vextir hækka og verðbólga fer úr böndunum.

Pistill Óðins birtist í Viðskiptablaðinu sem kom út í dag. Áskrifendur geta lesið pistilinn í fullri lengd hér.