Bjarni Kristján Þor­varðar­son, stjórnar­for­maður Eikar, fagnar því að Reginn hafi á­kveðið að aftur­kalla val­frjálst yfir­töku­til­boð í allt hluta­fé Eikar.

Yfir­töku­til­boðið hefur lögum sam­kvæmt sett starf­semi fé­lagsins miklar skorður en mikill dráttur hefur verið á öllu ferlinu m. a. vegna ítar­legrar skoðunar Sam­keppnis­eftir­litsins.

Líkt og Viðskiptablaðið greindi frá í morgun hefur stjórn Regins óskað eftir heimild FME um að falla frá yfirtökutilboði í Eik eftir að hafa fundað með stærsta hluthafa síðarnefnda félagsins, Brimgörðum.

Á grundvelli þeirra fundar var það heildstætt mat Regins að skilyrði tilboðsins um að handhafar að lágmarki 75% atkvæðaréttar Eikar samþykki tilboðið myndi ekki nást áður en gildistími tilboðsins rynni út þann 21. maí næstkomandi.

Til að lesa meira

Hægt að er kaupa áskrift að Viðskiptablaðinu, Fiskifréttum og Frjálsri verslun hér.

Verð frá 4.495 kr. á mánuði