Tom Fitzgerald, fjármálastjóri bandarísku líkamsræktarstöðvarinnar Planet Fitness, mun láta af störfum seinna á þessu ári. Tilkynningin kemur stuttu eftir að fyrrum forstjóri, Chris Rondeu, sagði af sér úr stjórn fyrirtækisins og eftir röð uppsagna.

Fitzgerald segist ætla að hætta í ágúst og mun fyrirtækið ráða til sín ráðningarfyrirtæki til að aðstoða sig við að finna næsta fjármálastjóra.

Crag Benson, bráðabirgðaforstjóri Planet Fitness, þakkaði Fitzgerald fyrir unnin störf en hann er talinn hafa gegnt lykilhlutverki við að hjálpa fyrirtækinu að komast í gegnum Covid-19 heimsfaraldurinn.

Miklar breytingar hafa verið á stjórnarstöðum innan líkamsræktakeðjunnar en fyrr í vikunni greindi fyrirtækið frá því að Chris Rondeu hafi sagt upp vegna ágreinings innan stjórnarinnar síðan í september.

Ákvörðun Planet Fitness um að segja upp 9% af starfsfólki sínu var einnig talin tengjast þessum ágreiningi.