Stjórn Set ehf. hefur ráðið Guðbjörgu Sæunni Friðriksdóttur sem nýjan framkvæmdastjóra Set ehf. en fjölskyldufyrirtækið hefur verið í söluferli. Guðbjörg er menntaður iðnaðarverkfræðingur frá Háskóla Íslands og mun hefja störf í sumar.

Fyrirtækið velti um 5 milljörðum króna í fyrra en samanlögð velta félagsins með framleiðslufyrirtækinu Set Pipes GmbH í Þýskalandi og söluskrifstofu Set Pipes AS í Danmörku var 7,5 milljarðar.

Eftir áratuga starf hjá fyrirtækinu hefur Bergsteinn Einarsson framkvæmdastjóri ákveðið að stíga til hliðar og einbeita sér að söluferli fyrirtækisins. Undir forystu hans hefur velta fyrirtækisins aukist og fyrirtækið fest sig í sessi sem leiðandi aðili í framleiðslu og sölu á lagnaefni á Íslandi, en félagið starfrækir einnig framleiðslufyrirtæki í Þýskalandi og söluskrifstofu í Danmörku.

„Að baki er langur tími uppbyggingar og það hefur verið gefandi og mitt helsta áhugamál að leiða fyrirtækið alla starfsævina. Nú er komið að tímamótum, fjölskyldufyrirtækið komið í söluferli og því réttur tími til að skipta um forystu í brúnni,“ segir Bergsteinn sem mun láta af störfum í sumar.

Bergsteinn mun verða Guðbjörgu til ráðgjafar eftir því sem óskað verður eftir og mun stýra Set Pipes GmbH í Þýskalandi fram yfir söluferli félagsins ytra.

„Ég hlakka til að taka við framkvæmdastjórnarstarfinu hjá Set af Bergsteini eftir farsæla stjórnartíð hans, þar sem fyrirtækið hefur stækkað og styrkst ár eftir ár. Fyrirtækið er mikilvægt í innviðum Íslands og hefur mikil vaxtartækifæri,“ segir Guðbjörg Sæunn.