Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 0,52% og er 8.235 stig við hádegi, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis. Veltan nemur 11,2 milljörðum króna.

Össur hefur hækkað um 0,52% og Exista hefur hækkað um 0,3%.

Atlantic Petrleum hefur lækkað um 2,42%, Eik banki hefur lækkað um 1,59%, Straumur hefur lækkað um 1,24%, Atorka Group hefur lækkað um 0,8% og FL Group hefur lækkað um 0,75%.

Gengi krónu hefur styrkst um 0,52% og er 119,7 stig.