Dr. Áslaug Ásgeirsdóttir hefur verið skipuð sem rektor Háskólans á Akureyri frá og með 1. júlí næstkomandi. Hún tekur við embættinu af Eyjólfi Guðmundssyni. Alls bárust fimm umsóknir um embættið en skipað er til fimm ára.

Skipan Áslaugar er samkvæmt ákvörðun Háskólaráðs frá 2. apríl síðastliðnum um að tilnefna hana sem næsta rektor skólans og samþykkti háskólaráðherra tillöguna.

„Háskólinn á Akureyri er góður háskóli sem hefur ákveðna sérstöðu í íslensku háskólasamfélagi og það verður gaman að byggja á þeim grunni til framtíðar,“ segir Áslaug í tilkynningu á vef HA.

Aðstoðarrektor hjá Bates Collage

Áslaug starfar í dag sem prófessor við Bates Collage, Lewiston, Maine og hefur starfað þar frá árinu 2001. Hún hefur gegnt þar ýmsum stjórnunarstörfum, s.s. starfi aðstoðarrektors og starfi deildarforseta.

Áslaug er með doktorsgráðu í stjórnmálafræði frá Washington University in St. Louis í Bandaríkjunum.

Þá hefur hún í gegnum störf sín hjá Bates College meðal annars komið að stjórnun rannsóknasjóðs, endurskoðun á nefndakerfi, yfirumsjón með námsmati, endurskipulagningu deildar og fleiri verkefnum bæði sem stjórnandi og prófessor. Áslaug hefur einnig starfað sem gestaprófessor við Háskólasetur Vestfjarða og sem Fulbright fræðimaður hjá Háskóla Íslands.