Atorka Group hefur keypt 18,5% í Interbulk Investments plc., markaðsverðmæti hlutarins eru tæpar 500 milljónir króna segir í tilkynningu til Kauphallarinnar. Interbulk Investments er þriðja stærsta flutningafyrirtæki í heiminum með sérhæfðar gámaeiningar fyrir efnaiðnað (e. Tank containers).

Fyrirtækið nýtir nýja tækni í flutningum og er með reynslumikið stjórnendateymi. Velta fyrirtækisins á síðasta ári var 140 milljónir evra og EBITDA síðasta árs var 12,4 milljónir Evra. Markaðurinn sem Interbulk starfar á hefur vaxið um 10% á ári s.l. 4 ár. Höfuðstöðvar Interbulk eru í Rotterdam og er félagið skráð á AIM markaðnum í London. Atorka Group er næst stærsti hluthafinn á eftir skoska fjárfestingafélaginu Clyde Blowers Group.