Hf. Eimskipafélag Íslands [ HFEIM ] hefur gert samkomulag við tvo af fyrrum eigendum Innovate í Bretlandi, þá Stephen Savage og Stephen Dargavel.

Samkomulagið er gert í kjölfar skoðunar stjórnar Eimskips á kaupum á Innovate og hafa fyrrnefndir aðilar samþykkt að skila 55.406.354 hlutum í Eimskip, sem gefnir voru út vegna kaupa á hlutafé í Innovate í júní 2007, segir í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Verðmæti bréfanna í þeimviðskiptum var um 2,5 milljarðar króna. Miðað við lokagengi hlutabréfa Eimskips þann 29. júlí var markaðsvirði bréfanna um 792 milljónir króna. Eigin bréf Eimskips eru nú 159.878.087 hlutir.

Eimskip hefur átt í viðræðum við Peter Osborne og búist er við að þær haldi áfram, en hann er eigandi að 27.703.177 bréfa í Eimskip, sem hann fékk afhent við kaup Eimskips í Innovate í júní 2007.

„Við teljum samkomulagið sem nú hefur náðst mjög viðunandi fyrir Eimskip í ljósi aðstæðna. Við höfðum verulegar athugasemdir við þær forsendur sem lagðar voru fram við kaup okkar í Innovate í júní 2007 og töldum eðlilegt að það kaupverð gengi að fullu til baka. Það er því ánægjulegt að 2/3 af því kaupverði hafi nú skilað sér aftur til félagsins. Nú munum við ræða aftur við Pete Osborne á sömu nótum en þó er of snemmt að segja til um málalyktir í því máli,“ segir Halldór Kristmannsson, framkvæmdastjóri samskiptasviðs Eimskipa við Viðskiptablaðið.