Gengi hlutabréfa Icelandair Group lækkaði um 0,81% í Kauphöllinni í dag. Þetta var mesta lækkun dagsins. Á sama tíma lækkaði gengi bréfa VÍS um 0,52% og Eimskips um 0,21%.

Á móti hækkaði gengi bréfa Össurar um 0,8%, TM um 0,51% og Haga um 0,49%. Þá hækkaði gengi bréfa Marel um 0,47%, Regins um 0,3% og N1 um 0,27%.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,1% og endaði hún í 1.176 stigum. Heildarvelta með hlutabréf nam 312,4 milljónum króna og voru viðskiptin 39 talsins.