Í tilkynningu frá Icelandair kemur fram að þar sem enn er óljóst hvort af verkfalli flugumferðarstjóra verður í fyrramálið og hvaða flug verður hugsanlega fyrir röskun ef af því verður, hvetur Icelandair þá sem eiga bókað flug hjá félaginu á morgun, föstudaginn 27. júní, að fylgjast með á textavarpi og vefmiðlum sem birta komu- og brottfarartíma í Leifsstöð.

„Icelandair vonar að ekki komi til verkfallsins, en mun eftir fremsta megni skipuleggja brottfarir á boðuðum verkfallstíma með það í huga að óþægindi viðskiptavina verði í lágmarki,“ segir í tilkynningunni.