Niðurstöður Hagstofinnar sýna að tölvur eru á 89% heimila á Íslandi og 84% heimila geta tengst interneti. Nærri níu af hverjum tíu nettengdum heimilum nota ADSL, SDSL eða annars konar xDSL tengingu og einungis 7% nettengdra heimila nota hefðbundna upphringi-tengingu eða ISDN.

Níu af hverjum tíu Íslendingum á aldrinum 16?74 ára nota tölvu og internet. Flestir nota internetið því sem næst daglega. Tilgangur einstaklinga með notkun internets breytist lítið milli ára og líkt og fyrri ár var miðillinn helst notaður til samskipta og upplýsingaleitar. Árið 2007 hafði um þriðji hver Íslendingur pantað og keypt vörur eða þjónustu um internet á því þriggja mánaða tímabili sem spurt var um. Enn er algengast að fólk kaupi farmiða, gistingu eða annað tengt ferðalögum um internet.