Kögun hf. hefur keypt 35,77% hlutafjár Opin Kerfi Group hf (OKG). af Straumi Fjárfestingarbanka hf. Kaupin, sem greidd eru með reiðufé, fara fram á genginu 26,5 krónur á hlut. Fjámögnun kaupanna mun fara fram með útgáfu hlutabréfa í Kögun hf. og með lántöku. Stjórn Kögunar hf. mun nýta heimild í samþykktum félagsins til hlutafjáraukningar að nafnverði 22,5 milljónir.

Kaupverðið er rúmlega 2,85 milljarðar króna, en hið keypta hlutafé er að nafnvirði tæplega 108 milljónir.

?Við höfum fylgst með framgangi og útrás Opin Kerfi Group um nokkurt skeið og ákváðum að falast eftir hlut Straums í félaginu. Straumur reyndist hafa áhuga á að selja svo við gripum tækifærið," segir Gunnlaugur M. Sigmundsson, forstjóri Kögunar. ?Við höfum trú á framtíð Opin Kerfi Group og sjáum ýmis tækifæri til samvinnu fyrirtækjanna og samlegðar og þá ekki síst við dótturfélögin Skýrr og Teymi." Gunnlaugur segir kaupin hafa borið mjög brátt að, en að Kögun geti séð fyrir sér að eiga hlutinn áfram og taka virkan þátt í stjórn OKG eða selja hann aftur að hluta eða öllu leyti, eftir atvikum. ?Við munum koma til liðs við stjórn OKG, setja okkur inn í málefni félagsins og gera okkar besta til að styðja við vöxt þess og útrás, enda mikil rekstrarþekking og reynsla í báðum fyrirtækjunum á sviði upplýsingatækni."

Eignarhlutur Kögunar í OKG verður færður í reikninga félagsins með hlutdeildaraðferð. Viðskiptavild sem myndast verður metin hverju sinni með virðisrýrnunarprófi. Sveiflur í gengi OKG á markaði munu því ekki hafa bein áhrif á afkomu samstæðu Kögunar hf.

Að svo stöddu eru ekki uppi fyrirætlanir um að bæta frekar við hlutafjáreign Kögunar í OKG. Óskað verður eftir hluthafafundi í Opin Kerfi Group hf. svo fljótt sem við verður komið, þar sem fram fari kjör nýrrar stjórnar