Landsbanki Íslands hf. hefur samið við Fasteignafélagið Stoðir hf. um sölu á öllum hlutum Landsbankans í Landsafli hf. eða sem samsvarar 80% af útgefnum hlutum í Landsafli hf, segir í tilkynningu.

Heildarvirði alls félagsins í viðskiptunum nemur tæpum 19 milljörðum króna og hefur salan jákvæð áhrif á eigið fé Landsbankans sem nemur u.þ.b. 3.500 milljónum króna.

Landsbankinn var einn af stofnaðilum Landsafls með 20% hlut árið 1998. Landsbankinn eignaðist 100% hlut í félaginu í október 2003 og seldi 20% hlut til Burðaráss hf. árið 2005.

Landsafl er fasteignafélag sem fyrst og fremst sérhæfir sig í eignarhaldi, umsýslu, rekstri og útleigu fasteigna. Markmið félagsins er að eiga og reka fasteignir í langtíma- og/eða skammtímaútleigu.

Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans hafði umsjón með sölunni.