Fréttatíminn
Fréttatíminn
© vb.is (vb.is)

Michael Jenkins er ekki eigandi Fréttatímans, eins og sagði í frétt Viðskiptablaðsins í dag, heldur fjármagnaði hann stofnun blaðsins að hluta með láni til Miðopnu ehf., eiganda Fréttatímans.

Í frétt Viðskiptablaðsins er fjallað um frekari fjárfestingar Bandaríkjamannsins hér á landi. Þá sagði í byrjun fréttarinnar að fyrirtæki, sem Jenkins á helmingshlut í, héti Þórshamar, en það heitir Þórsgarður, eins og reyndar kom fram síðar í fréttinni. Að lokum ber að leiðrétta nafn mannsins, sem á félagið Meira leiguhúsnæði með Þórsgarði, en hann heitir Teitur Jónasson, en ekki Teitur Jónsson.

Frétt Viðskiptablaðsins.