Magnús Eyjólfsson hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra Merkingar ehf.

Hann ber jafnframt ábyrgð á fjármálum og sölu- og markaðsmálum fyrirtækisins.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Merkingu.

Þar kemur fram að Jóhannes Frank Jóhannesson, sem gegnt hefur starfi framkvæmdastjóra Merkingar frá 2006, starfar áfram hjá fyrirtækinu sem framleiðslu- og vöruþróunarstjóri auk þess að vera áfram tengiliður við stærstu viðskiptavini þess.

Magnús Eyjólfsson er iðnaðartæknifræðingur af markaðssviði Tækniskóla Íslands og með MS-próf í fjármálum frá Háskóla Íslands.

Hann starfaði við sölu- og markaðsstörf hjá Ísfelli ehf. á árunum 1997-2005. Frá ársbyrjun 2007 hefur Magnús starfað sem viðskiptastjóri hjá eignastýringu Glitnis.

Magnús er giftur Kristínu Láru Ólafsdóttur hjúkrunarfræðingi og saman eiga þau þrjú börn.