Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, átti í dag fund með Ann Linde, utanríkisviðskipta- og Evrópumálaráðherra Svíþjóðar, en hún er stödd hér á landi í vinnuheimsókn. Fyrr í dag opnuðu ráðherrarnir nýja lágvarmavirkjun á Flúðum. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá utanríkisráðuneytinu .

„Tengsl Íslands og Svíþjóðar eru sterk og norrænu gildin eru grundvöllur náins samstarfs á alþjóðavettvangi,“ er haft eftir Guðlaugi Þór í tilkynningunni eftir fund þeirra Linde. „Við erum sammála um að tækifæri til aukinna viðskipta milli ríkjanna séu mikil og er jarðvarmastöðin á Flúðum dæmi um það. Hún tvinnar saman sænska tækni og íslenska orku og opnar mikla möguleika á frekari nýtingu á lághitasvæðum.“

Ráðherrarnir ræddu einnig stöðu alþjóðaviðskipta, Evrópusamstarf, útgöngu Breta úr ESB og samstarf Norðurlanda.

Lágvarmavirkjunin er í landi Kópsvatns í Hrunamannahreppi og byggist hún á nýrri sænskri tækni. Verkefnið er samstarf Varmaorku og sænska fyrirtækisins Climeon sem framleiðir búnað til virkjunar lághitasvæða sem áður var ekki hægt að nýta til orkuframleiðslu. Er stefnt á að opna tuttugu slíkar virkjanir á næstu þremur árum.