Rekstrarhagnaður Orkuveitu Reykjavíkur fyrir fjármagnsliði, skatta ogafskriftir (EBITDA) árið 2009 var 13,0 milljarðar króna. Að teknu tilliti tilþeirra þátta nemur halli af rekstrinum 2,5 milljörðum króna og ræðst það aðmestu af 7,6% veikingu íslensku krónunnar frá upphafi til loka árs samkvæmt tilkynningu frá fyrirtækinu. Á árinu2008 varð halli að fjárhæð 73,0 milljarðar króna af rekstrinum. „Vaxandi tekjur fyrirtækisins í erlendri mynt gera því kleift að standa undirgreiðslum af erlendum lántökum þrátt fyrir miklar gengissveiflur," segir í tilkynningu.
    • Rekstur Orkuveitu Reykjavíkur var með 2.516 milljóna króna halla árið 2009 samanborið við 73.037 milljóna króna halla árið áður.
    • Rekstrartekjur ársins námu 26.013 milljónum króna en voru 24.168 milljónir króna árið áður.
    • Hagnaður fyrirtækisins fyrir fjármagnsliði, skatta og afskriftir, EBITDA, var 12.970 milljónir króna samanborið við 11.652 milljónir króna árið áður.
    • Fjármagnsliðir voru neikvæðir um 8.843 milljónir króna á árinu, en voru neikvæðir um 92.523 milljónir króna árið 2008.
    • Heildareignir þann 31. desember 2009 voru 281.526 milljónir króna en voru 259.373 milljónir króna 31. desember 2008.
    • Eigið fé þann 31. desember 2009 var 40.657 milljónir króna en var 48.359 milljónir króna 31. desember 2008.
    • Heildarskuldir fyrirtækisins þann 31. desember 2009 voru 240.868 milljónir króna samanborið við 211.015 milljónir króna í árslok 2008.
    • Eiginfjárhlutfall var 14,4% þann 31. desember 2009 en var 18,6% í árslok 2008.
Verulegur viðsnúningur varð í afkomu Orkuveitu Reykjavíkur á síðasta fjórðungiársins 2009, eins og fram kemur í ársreikningi fyrirtækisins, sem samþykkturvar í dag. Hagnaður af rekstrinum síðustu þrjá mánuði ársins nam um 8,8milljörðum króna. Hagstæð þróun álverðs veldur þar miklu.