Össur hækkaði í fyrstu viðskiptum í kauphöllinni í Kaupmannahöfn í morgun, en í dag er fyrsti viðskiptadagur félagsins þar. Gengi bréfanna var 5,2 við opnun markaðar, en er nú 5,7 og hefur því hækkað um 10%.

Veltan að baki þessari hækkun er ekki mikil, eða 38.000 danskar krónur, rúmlega 900.000 íslenskar krónur, í 7 viðskiptum.