Porsche hefur aukið hlut sinn í Volkswagen og segist vonast til að ná meirihluta hlutafjár Volkswagen til sín fyrir árslok.

Porsche á nú 42,6% hlut í Volkswagen, samkvæmt tilkynningu sem gefin var út í gær vegna óvissu á bílamarkaðnum.

Porsche var fyrir hluthafi Volkswagen með 35% hlut. Ekki er áhugi fyrir hendi á að sameina félögin þrátt fyrir samstarf á milli þeirra. Volkswagen framleiðir þriðjung íhluta Porsche bifreiða.

Deila innan stjórnar Porsche um hvernig standa skildi að yfirtöku á Volkswagen hefur nú verið leyst að sögn talsmanns fyrrnefnda fyrirtækisins.

BBC greindi frá.