Gengi hlutabréfa fasteignafélagsins Regins um 1,59% í Kauphöllinni í dag. Þetta var mesta gengislækkun dagsins. Á sama tíma lækkaði gengi bréfa Marel um 1,4%, Eimskips um 1,12% og TM um 1,01%. Þá lækkaði gengi bréfa Haga og Icelandair Group um 0,55% og VÍS um 0,48%.

Á sama tíma hækkaði gengi bréfa N1 um 0,54%, HB Granda um 0,33%, Össurar um 0,31% og Sjóvár um 0,08%.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,58% og endaði hún í 1.150 stigum.

Heildarvelta með hlutabréf í Kauphöllinni nam rúmum 1,2 milljörðum króna.