Í dag var haldinn fundur með starfsmönnum rækjuvinnslu Samherja á Akureyri þar sem þeim var tilkynnt að félagið hafi ákveðið að hætta rækjuvinnslu og loka starfsstöð félagsins á Akureyri.

Í frétt frá Samherja kemur fram að í kjölfar þessarar ákvörðunar verður flestum starfsmönnum rækjuvinnslunnar sagt upp, eða rúmlega 20 manns, en hluti mun fara til annarra starfa innan Samherja. Fram kom á fundinum að Samherji mun aðstoða alla eftir fremsta megni við að fá vinnu á Akureyri. Gerður hefur verið samningur við Capacent - ráðgjöf um að aðstoða fólkið í atvinnuleit þess, auk þess sem rætt hefur verið við forsvarsmenn annarra matvælafyrirtækja á Akureyri.

Í tilkynningu Samherja segir að rekstur rækjuverksmiðja hefur verið mjög erfiður undanfarin ár. Rekstur rækjuverksmiðja hér á landi síðustu misserin byggir að stærstum hluta á innfluttu hráefni, enda veiðin við Ísland í fyrra sú minnsta í 40 ára sögu rækjuveiða. Rækjuverksmiðjum hefur fækkað jafnt og þétt undanfarin ár, bæði hér á landi og annars staðar. Nú er svo komið að aðeins 4-5 verksmiðjur eru starfandi á Íslandi en þær voru rúmlega 30 þegar mest var fyrir nokkrum árum.

Gestur Geirsson, framkvæmdarstjóri landvinnslu Samherja hf., segir það mjög sárt að þurfa að grípa til þess að loka rækjuvinnslunni en aðrir kostir hafi einfaldlega ekki verið í stöðunni. "Við höfum á undanförnum árum hagrætt verulega í rekstri rækjuverksmiðjunnar til að halda honum gangandi, í þeirri von að aðstæður breyttust til hins betra. Það hefur hins vegar ekki gerst, heldur hafa rekstrarskilyrðin þvert á móti versnað," segir í tilkynningu.

Ofursterk króna í kjölfar glórulausrar vaxtastefnu Seðlabanka orsakar óviðundandi starfsumhverfi fyrir útflutningsgreinarnar og veldur fjöldauppsögnum víða eins og komið hefur fram á undanförnum mánuðum, segir Gestur ennfremur.