Tíu til tuttugu tækni- og verkfræðingar frá íslenska verkfræðifyrirtækinu HRV Engineering munu starfa við álver Alcoa Fjarðaáls í Reyðarfirði samkvæmt nýjum samningi fyrirtækjanna.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Alcoa en HRV Engineering mun sinna víðtækri verkfræðiþjónustu og ráðgjöf fyrir álverið.

Í tilkynningunni kemur fram að samningurinn felur í sér að sérfræðingar HRV Engineering munu sinna ráðgjöf og þjónustu við þróun og innleiðingu tækninýjunga, viðhald, umhverfismál, öryggi, velferð starfsmanna og ýmislegt annað sem tengist rekstri og starfsemi álvers Alcoa Fjarðaáls í Reyðarfirði.

Sérfræðingar HRV Engineering munu starfa í álverinu en njóta stuðnings frá skrifstofum fyrirtækisins í Reykjavík og skrifstofum Mannvits og Verkíss á Egilsstöðum.

Verðmæti samningsins nemur hundruðum milljóna króna á ári.

„Nýting endurnýjanlegra orkuauðlinda Íslands til álframleiðslu hefur skapað gríðarlega sérþekkingu á þessu sviði á Íslandi og verið grundvöllur fyrir vöxt HRV Engineering sem þekkingarfyrirtækis,“ segir Símon Þorleifsson í tilkynningunni en hann stýrir ráðgjöf vegna rekstrar og viðhalds álvera hjá HRV Engineering.

„Nýr samningur við Alcoa Fjarðaál tryggir áframhaldandi samstarf fyrirtækjanna og mikilvæga þekkingarmiðlun í báðar áttir milli Austurlands og höfuðstöðva okkar í Reykjavík. Samningurinn er því einnig mikilvægur fyrir áframhaldandi útflutning HRV Engineering á þekkingarverðmætum sem sköpuð hafa verið í íslenskum áliðnaði.“

Í tilkynningunni kemur jafnframt fram að HRV Engineering sérhæfir sig í þjónustu við áliðnaðinn á Íslandi og erlendis.

HRV Engineering hefur séð um mat á umhverfisáhrifum og hagkvæmniathuganir og unnið að heildarhönnun, stjórnun og eftirliti með öllum verkþáttum vegna nýframkvæmda, stækkana eða breytinga á íslenskum álverum. Fyrirtækið tók meðal annars mikinn þátt í byggingu álvers Alcoa Fjarðaáls í Reyðarfirði.

„Sérþekking fyrirtækisins á íslenskum áliðnaði hefur opnað mikla möguleika á útflutningi sérfræðiþekkingar og fyrirtækið stefnir að því að verða leiðandi aðili á heimsmarkaði í þjónustu við áliðnaðinn,“ segir í tilkynningunni.

Meðal nýlegra verkefna má nefna endurnýjun á álveri Kubal í Svíþjóð og mat á umhverfisáhrifum álvers á Bakka við Húsavík.