Á sjötta tug erlendra starfsmanna Samskipa voru útskrifaðir úr íslenskunámi í dag. Um 70 nemendur hafa stundað nám í íslensku á vegum félagsins í vetur.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

„Markvisst hefur verið stuðlað að íslenskunámi meðal starfsmanna af erlendum uppruna hjá Samskipum og alls hafa um 70 nemendur stundað nám í íslensku á vegum félagsins í vetur. Námið, sem er í samstarfi við Alþjóðahús og styrkt af menntamálaráðuneytinu, er að hluta til starfstengt og voru 40 kennslustundir á hvorri önn,“ segir úr tilkynningunni.

Þá kemur fram að markmiðið með náminu er að auka tjáskipti milli samstarfsfélaga, auka starfsánægju og auka möguleika á starfsþróun innan fyrirtækisins. Hefur félagið lagt sérstaka áherslu á íslenskunám meðal erlendra starfsmanna til að styrkja þá í starfi þar sem þekking á tungumálinu er lykilatriði þegar kemur að samskiptum við samstarfsmenn og viðskiptavini.

Nú eru útskrifaðir fjórir hópar, alls 53 starfsmenn. Fyrir áramót voru útskrifaðir 52 starfsmenn, sem flestir héldu áfram námi eftir áramótin, auk þess sem nokkrir bættust í hópinn.

Alls starfa 83 starfsmenn af erlendum uppruna hjá Samskipum á Íslandi af 16 þjóðernum, samkvæmt tilkynningunni.