Sigrún Ósk Kristjánsdóttir, sem gegnt hefur starfi ritstjóra Vesturlandsblaðsins Skessuhorns undanfarið ár, hefur hætt nú látið af störfum við Skessuhorn að því er kemur fram á heimasíðu Skessuhorns.

Hún mun eftir áramótin hefja störf sem þáttarstjórnandi Íslands í dag á Stöð 2. Magnús Magnússon útgefandi Skessuhorns ehf. og samnefndra miðla á Vesturlandi hefur tekið við starfi hennar en hann gegndi áður starfi ritstjóra þar til fyrir ári síðan.