Stjórn Samtaka atvinnulífsins hefur ráðið Þorstein Víglundsson sem framkvæmdastjóra samtakanna frá og með deginum í dag. Í tilkynningu segir að Þorsteinn hafi víðtæka reynslu úr íslensku atvinnulífi og hafi undangengin 15 ár starfað á sviði fjármálamarkaða og iðnaðar, nú síðast sem framkvæmdastjóri Samtaka álframleiðenda á Íslandi.

Þorsteinn segir í tilkynningunni að það sé mjög spennandi að takast á við þau fjölmörgu krefjandi verkefni sem framundan eru á vettvangi Samtaka atvinnulífsins. Langvarandi doði í efnahagslífinu, hátt vaxtastig og örar breytingar á skattaumhverfi fyrirtækja hafi haft mikil áhrif á rekstrarumhverfi íslenskra fyrirtækja undangengin ár. Mikilvægt sé að örva fjárfestingu og hagvöxt og ná þurfi skynsamlegri lendingu við gerð kjarasamninga til næstu ára.

Þá sé brýnt að leysa atvinnulífið úr viðjum gjaldeyrishafta og létta á þrýstingi sem fjármagn sem er lokað innan múra hafta veldur, bæði á gengisþróun og verðlag. Þessi verkefni kalli á gott samstarf aðila vinnumarkaðar og stjórnvalda, ef vel á að takast við úrlausn þeirra.

Þorsteinn er kvæntur Lilju Karlsdóttur, kennara og eiga þau þrjár dætur.