Velta með hlutabréf er það sem af er degi tæplega 1,4 milljarður.

Þegar þetta er skrifað, kl. 10:35 er um 75% allra viðskipta með hlutabréf í Kauphöllinni með bréf í Glitni [ GLB ] en velta með bréf í félaginu nemur nú um 1.047 milljónum.

Aðeins eru þó búin að fara fram 14 viðskipti með hlutabréf í Glitni í morgun. Þar á meðal eru ein stök viðskipti upp á 795,6 milljónir. Í því tilfellir voru um 46,6 miljón hlutir seldir á genginu 17,05 (sem er meðalgengi í félaginu).

Þá eru einnig viðskipti upp á 204,6 milljónir þar sem seldir eru 12 milljón hlutir á sama gengi, 17,05.

Önnur viðskipti eru minni.