Hlutafjárútboð í fasteignafélaginu Regin fer fram í dag og á morgun en Landsbankinn hefur boðið til sölu allt að 75% hlut í félaginu  í hlutafjárútboði. Stefnt er að skráningu Regins í Kauphöllina í kjölfar útboðsins.

Verðbil í útboðinu verði á bilinu 8,1 til 11,9 krónur á hlut. Þetta samsvarar því að markaðsverðmæti alls hlutafjár Regins sé á bilinu 10,5 til 15,5 milljarðar króna. Samkvæmt fyrri áætlun var áætlað að markaðsverðmætið yrði á bilinu 14,2 til 18,3 milljarðar króna.

Landsbankinn hefur auglýst útboðið í fjölmiðlum en í tilkynningu frá bankanum fyrir helgi kom fram að hann hygðist halda eftir 25% hlut í félaginu og skuldbinda sig til að selja hann ekki í 10 mánuði eftir skráningu í Kauphöll.

Útboðið er tvískipt. Samkvæmt því verður 48,75% í félaginu seld með þeim hætti að lágmarkaðstilboð á að hljóða upp á upp á 50 milljónir króna að lágmarki. Þá verður boðinn til sölu 26,25% hlutur og geta lágmarkstilboð í þeim hluta tilboðsins numið á bilinu 100 þúsund og upp að rétt tæpum 50 milljónum króna.

Landsbankinn mun falla frá útboðinu ef eftirspurn í útboðinu verður ekki nægjanleg til að ná megin markmiði útboðsins varðandi dreifingu hlutafjár eða ef ekki næst að selja yfir 50% af heildarhlutafé félagsins.

Í auglýsingum Landsbankans kemur fram að Kauphöllin mun að útboðinu loknu tilkynna um fyrsta viðskiptadag með hluti í félaginu með eins dags fyrirvara. Fyrsti dagur viðskipta getur í fyrsta lagi orðið þann 2. júlí nk.