Veitingastaðurinn sem meistarakokkurinn Gordon Ramsay og knattspyrnustjarnan David Beckham ætla að reka saman mun opna í september. Þetta kemur fram á vef Bloomberg. Greint var frá áformum þeirra félaganna um opnun staðarins í vor, en þeir tveir hafa verið félagar í um árabil.

Gordon Ramsay er einn þekktasti kokkur í heimi og á 10 veitingastaði í Lundúnum auk þess að halda úti vinsælum sjónvarpsþáttum um eldamennsku.

Hér má sjá vefsíðu nýja veitingastaðarins.