Tap á beinni fjárfestingu Íslendinga erlendis (svokölluð endurfjárfesting) ræður mestu um að viðskiptajöfnuður var óhagstæður um 128,1 milljarð króna á öðrum fjórðungi ársins.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Seðlabanka Íslands en í dag verða birt á heimasíðu Seðlabankans bráðabirgðayfirlit um greiðslujöfnuð við útlönd á öðrum ársfjórðungi 2008.

Í tilkynningunni kemur fram að halli þáttatekna hefur ekki áður mælst jafn mikill, og skýrist breytingin að mestu af tapi á beinni fjárfestingu.

Vaxtakostnaður vegna erlendra skulda hefur einnig hækkað. Vöruskipti í fjórðungnum voru nánast í jafnvægi en þjónustujöfnuður var neikvæður um 9,4 milljarða króna. Gengisáhrif voru fremur lítil í ársfjórðungnum.

Þá kemur fram að hreint fjárútstreymi nam 55,5 milljörðum króna í ársfjórðungnum en á fyrsta ársfjórðungi var fjárinnstreymi 133,2 milljarðar króna.