Röksemdir gegn opinberri reglusetningu og eftirliti á fjármagnsmarkaði eru meira sannfærandi en röksemdir með slíkum opinberum afskiptum. Þetta kemur fram í nýju áliti Viðskiptaráði Íslands.

Ví telur að miklu skynsamlegra væri að láta markaðsaðilum það eftir að setja sér eigin reglur og framfylgja þeim.

"Besta leiðin til að meta hvort rétt sé að gefa fjármagnsmarkaðnum aukið frelsi til að setja sér reglur er að kanna hvernig reynsla hefur verið af slíku frelsi hingað til, hérlendis og erlendis. Verður fjallað um það hér á eftir. Þar sem reynsla þessi er góð eru vandséð að nokkuð sé að vandbúnaði að halda áfram á þeirri braut," segir í skoðun VÍ.