Á þriðja ársfjórðungi 2018 var 76,5 milljarða króna afgangur á viðskiptajöfnuði við útlönd. Halli á vöruskiptajöfnuði var 43,7 milljarðar króna en afgangur á þjónustujöfnuði var 123,7 milljarðar króna. Frumþáttatekjur skiluðu 2,4 milljarða króna afgangi en rekstrarframlög 6,0 milljarðar króna að því er segir í fréttatilkynningu frá Seðlabanka Íslands.

Samkvæmt bráðabirgðayfirliti námu erlendar eignir þjóðarbúsins 3.380 milljarðar króna í lok ársfjórðungsins en skuldir 3.012 milljarðar króna. Hrein staða við útlönd var því jákvæð um 368 milljarðar króna eða 13,3% af vergri landsframleiðslu (VLF) og batnaði um 162 milljarða króna eða 5,9% af VLF í fjórðungnum.

Hrein fjármagnsviðskipti bættu erlenda stöðu þjóðarbúsins um 86 milljarða króna á fjórðungnum. Erlendar eignir jukust um 17 milljarða króna vegna fjármagnsviðskipta en skuldir lækkuðu um 69 milljarða króna.

Gengis- og verðbreytingar höfðu jákvæð áhrif á erlenda stöðu þjóðarbúsins um 79 milljarða króna. Skýrist það af 4% lækkun á gengi krónunnar gagnvart helstu gjaldmiðlum miðað við gengisskráningarvog og rúmlega 4% verðhækkunum á erlendum verðbréfamörkuðum á ársfjórðungnum.