Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, tilkynni á blaðamannafundi að hann hyggst sækjast eftir endurkjöri sem formaður flokksins.

Boðað hefur verið til landsfundar hjá Samfylkingunni þann 4. júní næstkomandi þar sem formannskjör fer fram. Á meðal annarra sem gefa kost á sér í kjörinu eru þingmennirnir Oddný Harðardóttir og Helgi Hjörvar auk Magnúsar Orra Schram, varaþingmanns.