Hátíðin HönnunarMars var sett með pompi og prakt í gær í Hafnarhúsinu að viðstöddu fjölmenni.

© Aldís Pálsdóttir (Aldís Pálsdóttir)

Lilja D. Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, Einar Þorsteinsson borgarstjóri, Halla Helgadóttir, framkvæmdastjóri Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs og Helga Ólafsdóttir, stjórnandi HönnunarMars, klipptu á borða og opnuðu þar sem hátíðina formlega, 16. árið í röð.

© Aldís Pálsdóttir (Aldís Pálsdóttir)

Sirkusþema ársins endurspeglaðist á opnuninni með skrúðgöngu úr Hörpu í Hafnarhúsið með Lúðrasveit Verkalýðsins í broddi fylkingar, Hringleikur var með sirkusatriði ásamt taktföstum tónum frá Fm Belfast dj setti.

© Aldís Pálsdóttir (Aldís Pálsdóttir)

Í ár býður dagskrá hátíðarinnar upp á gleði, forvitni og hugrekki með sýningum hönnuða og arkitekta víðs vegar um borgina.

© Aldís Pálsdóttir (Aldís Pálsdóttir)

Í tilkynningu segir að hátíðin verði næstu fimm daga en hún samanstendur af sýningum, opnunum, leiðsögnum, samtölum og margt fleira.