Á aðalfundi ráðgjafa- og hugbúnaðarfyrirtækisins Expectus sem haldinn var í byrjun mars voru þau Edda Valdimarsdóttir Blumenstein og Helgi Logason tekin inn í eigendahóp Expectus.

Í tilkynningu segir að nokkur kynslóðaskipti hafi orðið í hópnum á undanförnum árum og hafa eldri ráðgjafar vikið og yngra fólk komið inn í staðinn.

„Ég er virkilega stolt og þakklát fyrir það traust sem mér er sýnt að vera komin í eigendahóp Expectus og er full tilhlökkunar að halda áfram að vinna að vexti fyrirtækisins í nýju hlutverki,“ segir Edda.

Expectus var stofnað árið 2009 og hjá fyrirtækinu starfa nú yfir 30 sérfræðingar á sviði stjórnunar, reksturs, tækni og hugbúnaðargerðar.

„Ég er fullur tilhlökkunar fyrir nýju hlutverki hjá Expectus. Það eru gríðarlega spennandi tímar fram undan í hvernig fyrirtæki geta nýtt sér gögn og nýjustu tækni og Expectus er í lykilstöðu til að leiða þá þróun,” segir Helgi.

Expectus aðstoðar mörg af stærstu fyrirtækjum landsins við að nýta upplýsingatæknina til að taka gagnadrifnar ákvarðanir byggðar á rauntímaupplýsingum og ná þannig mælanlegum og varanlegum árangri í rekstrinum.

„Við erum gríðarlega ánægð með að fá þau tvö til liðs við eigendahópinn og hlökkum til að takast á við komandi verkefni með mjög svo öflugt teymi. Það er líka sérlega ánægjulegt að fá unga konu eins og Eddu inn í þennan hóp en kona hefur ekki verið meðal eigenda Expectus síðan 2018,“ segir Reynir Ingi Árnason, framkvæmdastjóri Expectus.