Sigurður Amlín Magnússon hefur verið ráðinn í nýtt hlutverk rekstrarstjóra hjá Stöð 2 þar sem hann verður hluti af stjórnendateymi Stöðvar 2 og heyrir beint undir Evu Georgs Ásudóttur, sjónvarpsstjóra Stöðvar 2. Greint er frá ráðningu hans í fréttatilkynningu.

Sigurður hefur starfað hjá félögum innan Sýnar frá árinu 2006, lengst af fyrir Vodafone en nú síðast sem forstöðumaður á sviði Fjármála og stefnumótunar. Sigurður er reyndur stjórnandi með víðtæka reynslu af fjarskipta og fjölmiðlamarkaði. Hann er með sterkan bakgrunn í sölu- og markaðsmálum, tekju- og virðisstýringu, áætlanagerð, vörustýringu og stefnumótun.

„Sigurður Amlín er með einstaka þekkingu sem stjórnandi, bæði úr fjarskipta- og fjölmiðlaheiminum, og ég er gríðarlega spennt að fá hann til liðs við frábæran hóp Stöðvar 2. Ég hef trú á því að þekking hans, reynsla og metnaður komi til með að styrkja rekstrareininguna til muna,“ segir Eva Georgs Ásudóttir, Sjónvarpsstjóri Stöðvar 2.

„Það eru að mínu mati spennandi tímar fram undan hjá Stöð 2. Ég hlakka til þess að takast á við nýtt hlutverk með því frábæra fólki sem vinnur fyrir Stöð 2,“ segir Sigurður Amlín Magnússon.