Í Herning, Danmörku safnaðist saman á dögunum fólk úr matvælaiðnaðinum víða að úr heiminum og keppti með vörur sínar á matvælahátíðinni International Food Contest. Hlaut Ísey skyr aðalverðlaunin í skyrflokki í ár að því er segir í fréttatilkynningu frá MS.
Skyrið, sem er með lagi af ferskju í botninum, er þróað af vöruþróunarteymi Mjólkursamsölunnar og framleitt fyrir MS á Finnlandsmarkað af danska fyrirtækinu Thise, Mejeriet Dybbækdal.
Skyrið er með séríslenskum skyrkúltúrum. Sagði dómnefndin að skyrið hefði „Just hit the spot.“. (Judge Notes : Great texture. Balance between fruit and acid in the shells. Just hit the spot). Mjólkursamsalan fékk einnig heiðursverðlaun fyrir súkkulaðimjólk í flokki mjólkur og kakódrykkja auk fjórtán annara verðlauna fyrir góðar mjólkurvörur.
Heildarlisti yfir verðlaun Mjólkursamsölunnar á matvælasýningunni er þessi:
- Heiðursverðlaun í flokki mjólkur og kakódrykkja – Súkkulaðimjólk 500ml frá Mjólkursamsölunni
- Gull - Ísey Skyr Vanilla 170 gr
- Gull - Ísey Skyr bökuð epli 170 gr
- Silfur - Ísey skyr Naturel 1000 gr
- Silfur - Ísey Skyr creme brulee 500 gr
- Silfur - Ísey próteindr. suðrænir ávextir 300 ml
- Silfur - Grísk jógúrt Naturel 1000 gr
- Silfur - Óska Jógúrt með melónukokteil 180 gr
- Silfur - Óska Jógúrt með kaffibragði 180 gr
- Silfur - LGG jarðaberja 65 ml
- Silfur - Hleðsla Íþróttadrykkur súkkulaðibragð 330 ml
- Brons - Laktósa frí mjólk 1,5% fita 1000 ml
- Brons - Laktósa frí Súrmjólk 1000 ml
- Brons - Ísey Skyr bláber 170 gr
- Brons - Drykkjarjógúrt með Jarðaberjum 300 ml