Samþykkt var á hluthafafundi Mandólíns, félags sem hélt utan um 70% hlut íslenskra fjárfesta í Marriott hótelinu við Austurhöfn, um miðjan janúar að greiða út 39,2 milljónir dollara, eða um 5,5 milljarða króna á gengi dagsins, til hluthafa með lækkun hlutafjár.

Til samanburðar nam innborgað hlutafé Mandólíns 4,9 milljörðum króna í lok síðasta árs.

Félagið seldi hlut sinn í Edition-hótelinu til ADQ, þjóðarsjóðs furstadæmisins í Abú Dabí, í desember síðastliðnum. ADQ á nú hótelið á móti bandaríska verktakafyrirtækinu Carpenter & Co.

Mandólín er í 49,9% eigu framtakssjóðsins SÍA III. Stormtré ehf., í eigu Hreggviðs Jónssonar, og Snæból ehf., í eigu hjónanna Steinunnar Jónsdóttur og Finns R. Stefánssonar, eiga hvort um sig 12,5% hlut. Vitinn Reykjavík ehf., sem er að mestu í eigu Vörðu Capital, á um 9,4% hlut, og Feier ehf. í eigu hjónanna Hjörleifs Jakobssonar og Hjördísar Ásberg á um 4%. Þá lífeyrissjóðirnir Almenni og Festa samtals ríflega 11% hlut.

Hluthafar Mandólíns

Hluthafi Hlutur
SÍA III 49,9%
Snæból 12,5%
Stormtré 12,5%
Vitinn Reykjavík 9,4%
Almenni 6,2%
Festa 5,4%
Feier 4,1%

Fréttin birtist í nýjasta tölublaði Viðskiptablaðsins sem kom út í morgun.