ISS mun taka yfir starfssemi Heitt og Kalt fra og með 1. desember næstkomandi. Samningur hefur verið undirritaður þess efnis. Heitt og Kalt er í eigu Sturlu Birgissonar og Freyju Kjartansdóttur. Stula verður hluti af stjórnunarteymi veitingasviðs ISS með Þórði Bragasyni yfirmatreiðslumanni og mun sturla verða aðstoðaryfirmatreiðslumaður í stóreldhúsi ISS.

„Sameinað Heitt og Kalt og Veitingasvið ISS mun styrkja ISS ehf enn frekar í því að ná markmiði sínu, sem er að veita öfluga veitingaþjónustu í þágu atvinnulífs með fjölbreytni, sveigjanleika og gæði að leiðarljósi,“ segir í tilkynningu frá ISS.