Jóhann Gísli Jóhannesson, sem hefur verið sjóðsstjóri hlutabréfa- og fyrirtækjaskuldabréfasjóða hjá GAMMA Capital Management frá árinu 2015, er hættur hjá fjármálafyrirtækinu. Fréttablaðið greinir frá þessu .

Áður vann Jóhann Gísli hjá Íslandsbanka og sem sjóðsstjóri innlendra hlutabréfa hjá Íslandssjóðum.

Í síðasta mánuði var tilkynnt um að Kvika fjárfestingabanki og hluthafar GAMMA hefðu skrifað undir viljayfirlýsingu um kaup bankans á öllu hlutafé GAMMA.